Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 230/2023-úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 230/2023

Fimmtudaginn 29. júní 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 10. maí 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. maí 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 4. júní 2021 og var umsóknin samþykkt 2. júlí 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. maí 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt á boðað námskeið.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. maí 2023. Með bréfi, dags. 11. maí 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. júní 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. júní 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hann hafi fengið boðun á námskeið þann 5. apríl 2023. Námskeiðið hafi farið fram þann 11. apríl 2023.

Kærandi hafi lent í slysi, brotið augntönn og í kjölfarið farið í bráðaaðgerð hjá tannlækni þann 11. apríl 2023 og því hafi hann misst af námskeiðinu. Kærandi hafi sent Vinnumálastofnun reikning fyrir tannlæknatímanum og útskýrt mál sitt.

Kærandi sé boðinn og búinn til að mæta á öll námskeið. Um sé að ræða fyrsta skipti sem eitthvað þessu líkt fyrirfarist hjá honum og það sé sökum slyss.

Kærandi skilji ekki niðurstöðu Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bóta í tvo mánuði. Einnig viti hann ekki hvernig hann eigi að framfleyta sér og sjö manna fjölskyldu sinni næstu tvo mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 4. júní 2021. Með erindi, dags. 2. júlí 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 3. apríl 2023 hafi kærandi verið boðaður á námskeiðið Atvinnuleitin frá A til Ö. Í boðun hafi kæranda verið greint frá því að námskeiðið yrði kennt í fjögur skipti, eða dagana 11., 13., 17. og 18. apríl 2023 klukkan 10:00 til 12:30. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi einnig verið tilkynnt að ótilkynnt forföll eða forföll án gildra ástæðna kynnu að leiða til stöðvunar á greiðslum atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið send áminning um umrætt námskeið þann 5. apríl 2023. Boðun og áminning hafi verið send á uppgefið netfang kæranda, með tilkynningu á „Mínum síðum“ og smáskilaboðum í farsíma.

Þann 24. apríl 2023 hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist tilkynning þess efnis að kærandi hefði ekki mætt á námskeiðið, þ.e. í þau fjögur skipti sem námskeiðið hafi verið kennt. Kæranda hafi í kjölfarið með erindi, dags. 2. maí 2023, verið boðið að koma að skýringum vegna fjarveru sinnar á námskeiðið. Kæranda hafi verið greint frá því að ef hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði kynni það að leiða til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta.

Þann 3. maí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda. Að sögn kæranda hafi hann ekki komist á umrætt námskeið þann 11. apríl 2023 sökum þess að tönn hans hafi brotnað. Meðfylgjandi skýringum kæranda hafi fylgt greiðsluyfirlit þar sem megi sjá að kærandi hafi greitt fyrir tannlæknaþjónustu þann sama dag.

Með erindi, dags. 9. maí 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að skýringar hans vegna fjarveru á umrætt námskeið hafi ekki verið teknar gildar og að réttur hans til greiðslu atvinnuleysisbóta hefði því verið felldur niður í tvo mánuði. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 9. maí 2023 hafi kærandi komið á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og átt samtal við ráðgjafa stofnunarinnar. Að sögn kæranda hafi hann ekki lesið boðunina á umrætt námskeið nógu vel. Hann hafi verið þeirrar trúar að honum hafi aðeins borið að mæta á námskeið þann 11. apríl 2023. Neðar í boðuninni hafi þó fleiri dagsetningar verið tilgreindar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta varði ákvörðun Vinnumálastofnunar að gera kæranda að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna fjarveru á vinnumarkaðsúrræði á vegum stofnunarinnar. Umrætt námskeið hafi verið haldið í fjögur skipti, dagana 11., 13., 17. og 18. apríl 2023.

Á meðal skilyrða fyrir greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. laganna felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Kærandi hafi verið boðaður á námskeiðið Atvinnuleit frá A til Ö, sem hafi verið haldið í fjögur skipti. Áður, eða þann 3. apríl 2023, hafi kærandi fengið boðun senda með tilkynningu á „Mínum síðum“, með tölvupósti á uppgefið netfang hans og með smáskilaboðum í farsíma. Kæranda hafi jafnframt verið send áminning þann 5. apríl. Í boðun þessari hafi verið að finna allar nauðsynlegar upplýsingar um námskeiðið, svo sem um tíma- og dagsetningar, staðsetningu og svo framvegis. Kærandi hafi hins vegar hvorki mætt á umrætt námskeið né boðað forföll. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæði 1. mgr. 58. gr. sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Jafnframt sé tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á umrætt námskeið. Að sögn kæranda hafi ástæða þess að hann hafi ekki mætt á námskeiðið verið sú að hann hafi þann 11. apríl 2023 lent í slysi og þurft að leita sér tannlæknisaðstoðar. Þá hafi kærandi jafnframt greint frá því að hann hafi verið þeirrar trúar að honum hafi aðeins borið að mæta á námskeiðið þann 11. apríl. Kærandi hafi ekki virst hafa gert sér grein fyrir því að námskeiðið væri haldið í fjögur skipti.

Að mati Vinnumálastofnunar séu framangreindar skýringar kæranda ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Fyrir liggi að kærandi hafi ekkert mætt á umrætt námskeið, sem hafi verið haldið í fjögur skipti. Kæranda hafi verið greint frá því að honum bæri skylda til að mæta á umrætt námskeið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Engar tilkynningar um forföll hafi þó borist frá kæranda. Það að kærandi hafi af sökum aðgerðar hjá tannlækni þann 11. apríl ekki getað mætt hafi ekki áhrif á framangreint mat stofnunarinnar. Þá sé það jafnframt mat stofnunarinnar að gera verði þær kröfur til atvinnuleitenda að þeir kynni sér vel efni þeirra tilkynninga og boðana sem stofnunin sendi þeim, þar með talið upplýsingar um tíma- og staðsetningar þeirra vinnumarkaðsúrræða sem þeir séu boðaðir til.

Með vísan til alls framangreinds, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsúrræðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að þær skýringar sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir og því beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Niðurstaða Vinnumálastofnunar sé að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kæranda var þann 3. apríl 2023 tilkynnt að hann væri boðaður á námskeiðið Atvinnuleit frá A til Ö sem yrði haldið dagana 11., 13., 17. og 18. apríl 2023. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var kærandi hvattur til að hafa samband við ráðgjafa Vinnumálastofnunar ef eitthvað væri óljóst eða hann þyrfti frekari upplýsingar. Kærandi var minntur á boðað námskeið þann 5. apríl 2023. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti á námskeiðið.

Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi verið í aðgerð hjá tannlækni þann 11. apríl 2023 og hafi því ekki getað mætt þann dag. Einnig hefur kærandi vísað til þess að hann hafi talið að hann hefði einungis átt að mæta á námskeiðið 11. apríl 2023. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í vinnumarkaðsúrræði sem honum var gert að sækja. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. maí 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum